● Nudd hefur margvísleg jákvæð áhrif á heilsu. Nudd er slakandi, minnkar streitu, verkjastillandi, eykur hreyfigetu og blóðflæði. Nuddarar eru ekki læknar og hafa því ekki heimild til að sjúkdómsgreina fólk. Nudd getur aldrei komið í staðinn fyrir læknismeðferð en getur verið notuð samhliða læknismeðferð. Það er mikilvægt að viðskiptavinurinn upplýsi nuddarann um sjúkdóma eða mein svo að nuddarinn geti tekið tillit til þess í meðferð sinni. Viðskiptavinur þiggur nudd á eigin ábyrgð og nuddarinn ber ekki ábyrgð á neinum fylgikvillum sem kunna að vera vegna heilsufars viðskiptavina.● Nudd er snerting og notaðar eru olíur og krem í meðferðum. Hreinlæti er mikilvægt bæði fyrir nuddarann og viðskiptavininn og því er mikilvægt að viðskiptavinurinn komi í meðferðina með hreinan líkama. Hreinlæti virkar á báða bóga og skal nuddari vera hreinn og snyrtilegur. Bæði nuddari og viðskiptavinurinn getur tekið ákvörðun um að aflýsa nuddi sé persónulegt hreinlæti ekki ásættanlegt.● Stakt nudd er í flestum tilfellum, eftir fyrirfram ákveðnu nuddkerfi nema að viðskiptavinurinn óski eftir ákveðnum áherslum í nuddinu (td. bak, höfuð, fætur o.s.frv.). Ef viðskiptavinurinn mætir reglulega í nudd er hann hvattur til að vinna með nuddaranum og deila með honum markmiðum með nuddinu.● Því miður getum við ekki boðið upp á meðgöngunudd. Við mælum með að leita til aðila sem sérhæfa sig í meðgöngunuddi og hafa til þess viðeigandi aðstöðu, búnað og sérþekkingu.● Áfengi/eiturlyf og nudd eiga ekki saman. Bæði nuddari og nuddþegi skulu halda sig frá áfengi a.m.k. 12 tímum fyrir nuddmeðferð.● Nuddþegi skal sjálfur ákveða hvort hann eða hún sé íklæddur nærfötum. Viðskiptavini er ávallt pakkað inn og aðeins það svæði sem unnið er með er óhulið.● Viðskiptavinir 18 ára og yngri skulu koma í fylgd með fullorðnum og verður foreldri eða forráðamaður að gefa samþykki sitt fyrir nuddinu. Viðskiptavinir mega óska eftir að hafa 3ja aðila hjá sér í nuddi, sé þess óskað. Skal sá aðili þá hlíta reglum um hegðun og samskipti.● Þetta er fagleg meðferðarstofa sem fylgir ströngum siðareglum. Trúnaður við viðskiptavini er viðhafður, nema ef um er að ræða athafnir og hegðun sem brjóta í bága við lög.● Nuddið er meðferðarúræði og er á engan hátt kynferðislegs eðlis. Kynferðisleg áreitni af hálfu viðskiptavinar eða nuddara, hvort sem er um að ræða athafnir eða orð, eru ekki liðin og mun leiða til þess að nuddið er tafarlaust slitið. Meðferð sem er slitið vegna óviðeigandi hegðunar viðskiptavinar skal greiðast að fullu og viðskiptavinurinn verður settur í endukomubann. Alvarleg kynferðisleg áreitni eða árás getur endað með kæru til lögreglu.● Engin ábyrgð er tekin á lausamunum gesta, á meðan á dvöl stendur.